Vilhjálmur Birgisson hefur verið kjörinn 1. varaforseti ASÍ
Tveir buðu sig fram til 1. varaforseta ASÍ. Guðbrandur Einarsson formaður Verslunarmannafélag Suðurnesja og Vilhjálmur, formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Niðurstaða kosningarinnar varð þessi: Guðbrandur Einarsson fékk 115 atkvæði eða 40,2% og Vilhjálmur Birgisson 171 atkvæði eða 59,8%
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, sem hafði tilkynnt framboð til 1. Varaforseta, dró framboð sitt til baka fyrr í dag.