Vilhjálmur árnason minnist lærimeistara síns: „kær vinur hefur kvatt þetta líf“

\"\"„Kær vin­ur og læri­meist­ari hef­ur kvatt þetta líf. Við Guðjón kynnt­umst þegar ég flutti til Grinda­vík­ur og fór að vinna með sjálf­stæðis­fé­lög­un­um í Grinda­vík. Fátt gladdi Guðjón meira en að fá nýja fé­laga til liðs við flokk­inn sem voru reiðubún­ir að vera virk­ir í fé­lags­starf­inu. Ekki skemmdi fyr­ir að við mig gat hann líka rætt um fjár­bú­skap og hesta­mennsku.“

Þetta segir Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í minningargrein í Morgunblaðinu um lærimeistara sinn, Guðjón Þorláksson, sem jarðsunginn var fyrr í dag.

Guðjón  fæddist 12. júlí 1945 í Grinda­vík. Hann lést 21. janú­ar 2020. Guðjón kvænt­ist Vikt­oríu Ket­ils­dótt­ur 1. des. 1976. Guðjón hafði frá árinu 2016 tekist á við afleiðingar vegna alvarlegra veikinda en Guðjón fékk blóðtappa í heila og lamaðist við það.

Guðjón var á sjó og stofnaði útgerð ásamt bræðrum sínum en henni lauk árið 2008. Þá var Guðjón með búskap í Vík vestast í bænum og síðustu árin bjuggu Guðjón og Vikt­oría þar með hesta og kind­ur. Í Morgunblaðinu segir:

„Guðjón var fjall­kóng­ur á af­rétti Grind­vík­inga í mörg ár, sum­ir kölluðu hann út­vegs­bónda.“

Guðjón var í Sjálfstæðisflokknum og Sjálfstæðismaður alla tíð. Gegndi hann um tíma formennsku í Sjálfstæðisfélagi Grindavíkur.

Vilhjálmur segir einnig um Guðjón, lærimeistara sinn og vin:

„Guðjón mætti alltaf með fyrstu mönn­um þegar eitt­hvað var um að vera, lét skoðun sína í ljós og miðlaði af ör­læti þekk­ingu sinni og reynslu. Guðjón var hreinn og beinn í sam­skipt­um og ætíð sann­gjarn. Sam­hliða því að vera óspar á leiðbein­ing­ar og ráðgjöf gætti hann þess alltaf að vænt­ing­ar um ár­ang­ur yrðu ekki óraun­hæf­ar.

Hann vildi að fólk hefði báða fæt­ur á jörðinni.

Guðjóni var kippt skjótt af vett­vangi eft­ir að hann veikt­ist en veik­ind­in hindruðu Gauja þó ekki í að fylgj­ast vel með þjóðmál­un­um og láta af sér vita.

Nú er skarð fyr­ir skildi og mik­ilsvirt­ur fé­lagi geng­inn af velli.“

„Ég kveð góðan vin með þakk­læti og virðingu. Vikt­oríu, fjöl­skyldu Guðjóns og vin­um votta ég mína inni­leg­ustu samúð.“

Útför Guðjóns fór fram frá Grinda­vík­ur­kirkju í dag.