Erlendir fjárfestar voru tilbúnir að borga tugi milljóna í mútur fyrir upplýsingar um afnámsáætlun íslenskra stjórnvalda sem kynnt var í byrjun sumars eftir að hafa farið hljótt um margra vikna skeið.
Þetta kemur fram í ítarlegri úttekt Viðskiptablaðsins sem kom út í dag, en þar segir að aðilar sem höfðu hagsmuni af afnámsáætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta hafi lagt sig mjög hart fram um að fá upplýsingar um með hvaða hætti hún yrði, áður en þær voru gerðar opinberar. Maður sem sagðist starfa fyrir fjárfesta við það að afla vitneskju um kröfur föllnu bankanna og íslensk fjárfestingartækifæri bauð íslenskum einstaklingi sem hafði aðgang að upplýsingum um afnámsáætlunina tugi milljóna í mútugreiðslur gegn því að fá skjöl eða aðrar hagnýtar upplýsingar afhentar.
Heimildarmenn Viðskiptablaðsins, sem vilja ekki koma fram undir nafni, segja að umræddur maður hafi komið frá Bandaríkjunum til Íslands síðasta vetur og sagst starfa við upplýsingaöflun fyrir fjárfesta (e. business intelligence). Sá hafi upphaflega verið áhugasamur um kröfur í slitastjórnum föllnu bankanna.
„Hann kom til Íslands og hitti fólk í vetur. Hann var mikið að spyrja um einstakar persónur og hvernig landslagið væri í pólitík og efnahagsmálum. Síðan var hann mjög áhugasamur um þessa vinnu við afnám hafta. Á þessum tímapunkti, í þessari heimsókn gerði hann ekki meira með það,“ segir einn heimildarmanna Viðskiptablaðsins.
Nánar má lesa um málið inni á vb.is.