Vildi taka við af hönnu birnu en fékk ekki

Ragnheiður Ríkharðsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins sóttist eftir því að taka við embætti innanríkisráðherra þegar Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði af sér, en fékk hvorki það embætti né heldur að verða menntamálaráðherra eins og hún sóttist eftir að loknum síðustu þingkosningum.

Þetta kemur fram í viðtali við Ragnheiði í Fréttablaðinu í dag, en þar segist hún í báðum tilvikum hafa orðið fyrir vonbrigðum: \"Ef þú sækist eftir einhverju og telur þig hæfa til þess að gegna embættum og annar verður fyrir valinu þá finnst mér fáránlegt að segja að ég hafi verið að gera að gamni mínu. Ég sóttist eftir þessu af fullri alvöru og auðvitað varð ég fyrir vonbrigðum en það skilar manni litlu fyrir morgundaginn,“ segir hún við blaðið.

Í viðtalinu ræðir Ragnheiður lekamálið, en Þórey Vilhjálmsdóttir, annar þáverandi aðstoðarmanna Hönnu Birnu, var tengdadóttir Ragnheiðar þegar málið hófst. Rangheiður telur það augljóst að Hanna Birna og aðstoðarmenn hennar hefðu getað gert margt öðruvísi í málinu: \"Menn hefðu átt að taka á ýmsu með öðrum hætti heldur en gert var. Umboðsmaður Alþingis finnst mér hafa lokað þessu máli. Hanna Birna sagði fyrst af sér sem dómsmálaráðherra og segir síðan af sér sem innanríkisráðherra og axlar þannig pólitíska ábyrgð og gerði það með reisn. En hún hefur lært af þessu, Sjálfstæðisflokkurinn hefur lært af þessu og ég held bara að pólitíkin í heild sinni þurfi að endurskoða allt saman. Líka það sem kom fram í rannsóknarskýrslu Alþingis 2010.“