Einn skeleggasti málsvari íslenskrar verslunar og þjónustu hér á landi, Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í kvöld.
Það er óhætt að segja að Margrét láti vaða á súðum í þætti kvöldsins, en hún er harla ómyrk í máli þegar talið berst að samfélagsgerðinni á Íslandi - og vel að merkja, kynslóðin sem nú sé komin í ráðastöður hér á landi sé sú fyrsta í háa herrans tíð sem afhendi þjóðfélagið í verra ástandi til kynslóðanna sem á eftir koma en hún fékk sjálf upp í hendurnar. Margréti reiknast til dæmis til að það hafi verið hennar kynslóð þrefalt ódýrara að komast inn á húsnæðismarkaðinn en það sé ungu fólki í dag, altso fyrir börnin hennar og annarra jafnaldra hennar. Þetta sé skammarlegt.
Hún rekur sögu sína á lifandi og skemmtilagan hátt, aldeilis ófeimin við að segja frá staminu sem hefur háð henni alla tíð, en ekki þó síst í æsku þegar henni var strítt á málheltinu. Hún ætlaði sér allt aðra hluti en að taka við fyrirtæki föður síns og afa, en á endanum hafi það farið svo að hún settist þar á stól hæstráðenda, en hún tekur eitt skýrt fram; hún sé vonlaus sölumaður!
Aðspurð hvort stjórnmálaflokkarnir séu ekki endalaust að biðja hana um að setjast á lista hjá sér, segir hún að tilboðin skorti þar fráleitt, en þingmennska kitli hana ekki að ráði, þótt hinu sé ekki að leyna að hún geti vel hugsað sér að verða ráðherra, enda yrði hún góður herra á því sviði.
Mannamál eru frumsýnd klukkan 20:30 í kvöld.