Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins sagði opinskátt frá því í viðskiptaþættinum Hringtorgi í gærkvöld að hún hefði markvisst unnið gegn því að sonur sinn færi í iðnnám. Áunnir fordómar hefðu talið henni trú um það að stráknum væri best komið fyrir í bóknámsskóla, enda þótt hann hefði alla sína unglingstíð verið algerlega heillaður af verklögum fögum, einkum vélvirkjun. En Guðrún, eins og hún lýsti svo hispurslaust í samtali við Huldu Bjarnadóttur á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld fékk sínu framgengt; strákurinn fór í bóknámið að kröfu móður sinnar, hélt þar þokkalega út á fyrsta ári, en gafst svo upp og tilkynnti móður sinni, núverandi forystumanni íslensks iðnaðar, að hann ætlaði að söðla um, fylgja sannfæringu sinni og fara í vélvirkjun. Guðrún segir þessa fordóma sína koma vel á vondan; gríðarlegt átak þurfi til að fjölga iðn- og tæknimenntuðu fólki á Íslandi á komandi árum og hvergi í atvinnulífinu sé meiri þörf á menntuðu fólki. Hún sé stolt af stráknum sínum í dag, verkefnaskortur eða atvinnuleysi muni aldrei trufla hann í framtíðinni og góð laun séu í boði fyrir hann; í reynd sé barist um hvern vel menntaðan iðnaðarmann í dag.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var einnig gestur Hringtorgs í gærkvöld, en hún er í forsvari menntamála hjá Samtökum atvinnulífsins. Hún sagði að í ljósi þess að aðeins 12 prósent grunnskólanema skila sér í iðn- og tækninám yrðu stjórnvöld og háskólasamfélagið að taka við sér svo hægt verði að leiðrétta þessu skekkju í framboði náms og spurn eftir vinnu. Til að svara eftirspurn yrði þriðji hver nemandi úr grunnskóla að fara í iðn- og tækninám á næstu árum, annars færi Ísland halloka í samkeppni við önnur lönd hvað afkomu og framleiðslu varðaði.
Hægt er að skoða klippur úr þætti gærkvöldsins eða þáttinn í heild sinni hér.
Vildi ekki að sonurinn færi í iðnnám
Fleiri fréttir
Nýjast