Fyrri þátturinn af tveimur þar sem ofurhuginn Vilborg Arna Gissurardóttir segir frá ævi sinni og afrekum er á dagskrá Hringbrautar í kvöld, en þar situr hún gegnt Sigmundi Erni Rúnarssyni í viðtalsþættinum Mannamáli.
Saga Vilborgar Örnu er merk og mikil, svo sem spyrill kvöldsins þekkir, enda skrifaði hann ferða- og ævisögu hennar sem kom út haustið 2013, en þá hafði hún afrekað það sem aðeins örfáum afreksmönnum hefur tekist í heiminum, að komast ein síns liðs á Suðurpólinn.
Frá því bókin kom út hefur mikið á daga Vilborgar Örnu drifið, en tvær tilraunin hennar til að komast á toppinn á hæsta fjalli heims, Everest, vorið 2014 og aftur 2015 fóru út um þúfur vegna hrikalegra náttúruhamfara í Nepal - og þó þær væru mannskæðar í fyrra skiptið urðu þær sínu verri og óhugglegri í seinna skiptið. Vilborg Arna var í báðum tilvikum stödd í miðju hamfaranna og missti fjölda vina og félaga í snjóflóðunum sem hrifu með sér búðir hennar og búnað allan. Hún kveðst ekki vera söm á eftir.
Í þætti kvöldsins lýsir hún þessum ósköpum í þaula, raunar svo nákvæmlega að áhorfendur hlýtur að setja hljóða.
Í seinni þættinum með Vilborgu Örnu, sem sýndur verður á Hringbraut á miðvikudagskvöldið eftir páska segir frá því hvernig stelpa úr Vogaskóla, sem þrisvar sinnum var rekin úr skóla, fann að lokum hvað hún gat eftir að hafa verið týnd og villt um árabil.
Mannamál er á dagskrá öll miðvikudagskvöld klukkan 21:00.