Þetta kom fram í kastljósviðtali við hann í gærkvöld: \"Ég hef lýst þeirri skoðun minni og það hafa margir fleiri gert að ýmis rök mæli með því að menn byggi bara nýjan flottan hátæknispítala frá grunni á betri stað,\" sagði Sigmundur Davíð þar og bætti við: \"Með betri stað á ég við stað sem liggur betur við samgöngum, er meira miðsvæðis, býður upp á meiri þróunarmöguleika og svo framvegis. Hins vegar er það eitthvað sem ég nefndi til sögunnar og aðrir hafa nefnt líka sem leið sem menn ættu að fara út í ef þeir sæju fram á að með því væri hægt að gera hlutina hraðar og á hagkvæmari hátt. Ekki til þess að tefja framkvæmdir eða gera þær dýrari,\" sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í Kastljósinu. Hann segir alls ekki sjálfgefið að það myndi tefja framkvæmdir að reisa nýtt hátæknisjúkrahús á nýjum stað.
\"Nei það þarf nefnilega ekki að gera það. Við höfum séð fjölmörg dæmi frá nágrannalöndunum um það að það getur verið bæði ódýrara og miklu hraðvirkara að byrja frá grunni á nýjum stað, í stað þess að vera að tjasla upp á gamlar byggingar og púsla við þær.\"
Með þessum orðum talar Sigmundur Davíð þvert á vilja Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðisráðherra sem stefnir staðfastlega að því að treysta Landspítalann í sessi á sínum stað með uppbyggingu hátæknisjúkrahúss, en nýlega skrifaði hann grein þess efnis ásamt Deghi B. Eggertssyni borgarstjóra og Páli Matthíassyni forstjóra Landspítalans.