Það er frumherjum eins og Ágústi Guðmundssyni, Hrafni Gunnlaugssyni og Þorsteini Jónssyni að þakka að strákar af minni kynslóð treystu sér til að fara að búa til bíómyndir.
Þetta segir Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri, sem er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld klukkan 20:00, en þar rekur hann listamannslíf sitt, sem hófst á bóhemsku heimili föður hans og móður í 101 Reykjavík - og cellóið var fyrsta viðfangsefni hans í listinni, hljóðfærið sem pabba hans dreymdi um að vinna á og hljóðfærið sem Hilmar dreymdi um að Hera dóttir hans félli líka fyrir.
Hann lýsir þvi á lifandi hátt hvernig nýjasta plata grúppu hans, Melchoir, varð til en hún hverfist um Hótel Borg, þá útungarstöð elskenda um og upp úr 1980 þegar miðpunktur menningarlífsins var í því rómaða vertshúsi - og svo talar hann um æskuna, mótunarárin og brjálæði kvikmyndagerðarinnar, en einnig samvinnuna við Jón Óttar Ragnarsson í sjónvarpi sem kenndi honum að vinna með brjálæðingum í geiranum í bestu merkingu þess orðs, en hann hrífist af því að vinna með svoleiðis fólki sem eigi sér engin andleg landamæri - og svo fjallar hann um dótturina, einu kunnustu kvikmyndaleikkonu Íslands nú um stundir - og augnablikið þegar hann sá að hún átti að leggja leiklistina fyrir sig.
Mannamál hefst sem fyrr segir klukkan 20:00 í kvöld.