Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir jólafrí starfsfólks Hagstofunnar kosta skattgreiðendur á milli 20 til 25 milljónir króna.
Þetta kom fram í viðtali við Óla Björn í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.
Hagstofan er lokuð fram á nýtt ár eftir að ákveðið var að veita starfsfólki vikulangt frí á milli jóla og nýárs. Ákvörðunin hefur verið gagnrýnd og sögð skjóta skökku við í ljósi aðstæðna á opinberum vinnumarkaði.
„Þetta er fordæmi sem getur aldrei talist gott,“ sagði Óli Björn jafnframt á Bylgjunni. Á síðasta ári haf rekstur Hagstofunnar kostað 1,9 milljarða króna og bendir Óli Björn einnig á að launakostnaður stofnunarinnar sé sambærilegu þeim kostnaði, um 1,6 milljarðar.
„Miðað við þessar tölur er meðalkostnaður á starfsmann, ekki laun, 13 milljónir á liðnu ári. Ef það eru 120 stöðugildi í fjóra daga eru þetta 20 til 25 milljónir sem þetta kostar skattgreiðendur,“ sagði Óli Björn jafnframt.
Hagstofan er þó ekki eina ríkisstofnunin sem er með lokað á milli jóla og nýárs en mbl.is tók saman lista yfir aðrar stofnanir. Til að mynda voru þó nokkrar stofnanir með lokað á Þorláksmessu og aðrar með skerta þjónustu milli jóla og nýárs. Á meðan sumar eru með alveg lokað milli jóla og nýárs líkt og Hagstofan.
Dæmi um stofnanir sem eru með lokað á milli jóla og nýárs eru eftirfarandi samkvæmt lista mbl.is:
- Fjarskiptastofa
- Hljóðbókasafn Íslands
- Hugverkastofan
- Hæstiréttur
- Héraðsdómstólar
- Náttúrufræðistofnun Íslands
- Menntamálastofnun
- Rannís