Hagfræðideild Landsbanka Íslands birtir í dag fróðleik um hagtölur og markaðsupplýsingar. Síðustu ár hafa tveir gagnstæðir kraftar tekist á í verðbólguþróuninni - gengi krónu og húsnæðisverð.
Styrking krónunnar og lág erlend verðbólga og aukin samkeppni inn á markaðinn (Costco) hafa unnið gegn miklum verðhækkunum á húsnæði.
Þegar mest lét í sumar var framlag húsnæðis 3,9% til hækkunar en framlag innflutnings var 2,3% til lækkunar.
Hagfræðideild bankans hefur bent á að hvorugt getur verið sjálfbært til lengri tíma.
Báðir þættir eru að gefa eftir og eru skýr merki um það.
Um þetta má lesa á www.landsbankinn.is og www.hagstofa.is