Víkingur heiðar vann tvenn verðlaun frá bbc – „alveg stórkostlegt“

Víkingur Heiðar Ólafsson vann tvenn verðlaun tónlistartímarits breska ríkisútvarpsins,  BBC Music Magazine, fyrir plötu sína þar sem hann flytur verk Johanns Sebastians Bach. Víkingur Heiðar vann fyrir plötu ársins þvert á flokka og fyrir plötu ársins í flokki tónlistar án söngs.

„Þetta er bara ótrúlegt, alveg stórkostlegt. Ég er líka kannski tilfinningalega á öðrum stað en vanalega, ég eignaðist son fyrir viku síðan,“ segir Víkingur Heiðar í samtali við RÚV.is og ljóst að lífið leikur við hann.

„Maður upplifir sig svo oft einan í músík, manni líður þannig þegar maður er að vinna endalaust, upplifir sig svolítið einangraðan,“ bætir hann við.

Víkingur Heiðar segir að þegar svona gerist þá finni hann fyrir væntumþykju og finnist sem hann skipti fólk máli. „Það gefur mér rosalega mikinn kraft.“

Víkingur Heiðar vinnur um þessar mundir að næstu plötu sinni, sem áætlað er að komi út í byrjun næsta árs, og segir að hún verði samtal milli tveggja tónlistarmanna. „Það eru 200 ár á milli þeirra.“