Viking opnar á nýrri kennitölu

Ferðamannaverslanirnar The Viking hafa verið opnaðar á ný eftir að hafa verið lokaðar í tvær vikur vegna vangoldinna vörsluskatta. Eignir fyrirtækisins hafa verið færðar yfir á nýtt félag.
 

Verslanirnar voru áður reknar und­ir kenni­tölu Hórasar ehf. Fréttavefurin mbl.is greinir frá því að þær hafi nú verið færðar yfir á nýtt félag. Samkvæmt vefnum sýnir kvittun úr versl­un­ Viking við Hafn­ar­stræti að þær séu nú reknar und­ir kenni­tölu fé­lag­ins H-fast­eign­ir, sem breytti virðis­auka­skatts­núm­eri úr leigu atvinnuhúsnæðis yfir í blandaða heild­versl­un um ára­mót­in. Sigurður Guðmundsson, eigandi Viking, er stjórnarmaður í báðum félögum. 

Í frétt mb.isl segir að eftir að innheimtumenn ríkissjóðs hafi stöðvað starfsemi fyrirtækis vegna vanskila á gjöldum geti atvinnurekstur hafist að nýju með tvennum hætti: ann­ars veg­ar með því að greiða meiri­hluta gjald­anna og hins veg­ar að flytja rekst­ur­inn yfir á nýja kenni­tölu.  

Samkvæmt upplýsingum frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu hefur sjö sinnum verið reynt að gera fjárnám hjá Hórasi ehf. án árangurs. Árin 2011, 2013, 2016 og þrisvar sinnum í fyrra, síðast í september.