Vikan þegar kassi granda var tæmdur

Karl Ágúst Úlfsson segir þetta vera vikuna þegar kassi HB Granda var tæmdur sem hljóti að teljast snilldarlegt útspil að hálfu stjórnenda útgerðarfyrirtækisins því nú sé ekkert eftir á botni hans til að hækka lítillega launin hjá landverkafólkinu. Þáttur hans er frumsýndur klukkan 20.00 í kvöld.


Karl Ágúst fer jafnan geyst í imnngangsorðum sínum eins og dyggir áhangegur þátta hans vita vel, en hann gerir vitaskuld upp flokksþing Framsóknar um nýliðna helgi og er umhugað um stöðu íslenskunnar, ekki sé nóg með að unglingar á Íslandi skilji ekki lengur íslenski heldur sé nú svo komið að íslenskir stjórnmálamenn geti ekki lengur sent frá sér skýrslur nema á ensku.


Gestir Karls Ágústs í kvöld eru Birgitta Birgisdóttir leikkona og Sævar Sigurgeirsson liðsmaður Ljótu hálfvitanna.


Þáttur hefst sem fyrr segir á slaginu 20.00 í kvöld og varir í 45 mínútur.