Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair segir á Þjóðbraut í kvöld að félagið sé enn gríðarlega öflugt. Ýmislegt í umhverfi flugrekstrar hafi orðið til þess að félagið hefur tapað miklu undanfarið. Ekki þurfi miklar breytingar að eiga sér stað til að mikið sjáist á rekstrartölum, svo sem mikil lækkun fargjalda á markaðnum.
Hann bendir á erfitt bú sem hann tók við árið 2008 og mikinn uppgang eftir það, þar til í fyrra en fyrsta lækkun af þremur undanfarið varð í apríl 2016. Afkomuviðvörun var svo send út þann 1.febrúar síðastliðinn.
Hann segist munu víkja sem forstjóri muni stjórn félagsins vilja það - \"Félagið er númer eitt\", segir hann í viðtali við Lindu Blöndal á Þjóðbraut á milli 21 og 22 í kvöld. Þáttinn má finna á flakkaranum og er einnig endursýndur.