Í brýnu hefur slegið milli gömlu vinnufélaganna Ara Edwald og Ólafs Stephensen á 365 sem nú gæta að því er virðast tveggja ólíkra hagsmunaaðila; mjólkuriðnaðarins og atvinnurekenda.
Ari sem er fyrrverandi forstjóri 365 réð Ólaf á árum áður sem ritstjóra Fréttablaðsins, en nú er vík milli vina því ásakanir ganga á víxl milli þeirra í nýjum hlutverkum, Ara sem nýs forstjóra Mjólkursamsölunnar og Ólafs sem nýylegs framkvæmdasttjóra Félags atvinnurekenda. Deilan snýst ekki síst um frelsi í viðskiptum og framleiðslu, en Ólafur sakar sinn gamla félaga um einokunartilburði, Ari segir Ólaf hafa uppi vítaverð ummæli - og hefur deila þeirra gömlu samherja ágerst mjög síðustu daga.
Nú hefur Ólafur svarað tilkynningu frá MS í gær þess efnis að MS hafi verið í samráði með Kaupfélagi Skagfirðinga og Mjólku og leynt gögnum þar að lútandi, en leturbreytingar eru Ólafs: \"„Fyrir áfrýjunarnefnd lagði MS í fyrsta sinn fram tiltekið gagn, samning við Kaupfélag Skagfirðinga frá 15. júlí 2008. Undir rannsókn málsins hafði MS aldrei vísað til eða greint Samkeppniseftirlitinu frá þessum samningi, þrátt fyrir að Samkeppniseftirlitið hefði ítrekað óskað eftir skýringum og gögnum frá MS vegna umræddrar verðlagningar. Í úrskurði áfrýjunarnefndar segir um þetta: \"Þótt ekki hafi komið haldbærar skýringar á því hjá áfrýjanda hvers vegna bæði samningurinn hafi ekki verið lagður fram við meðferð málsins hjá Samkeppniseftirlitinu né grundvallargögn um efndir hans og uppgjör hjá áfrýjunarnefndinni telur nefndin sér skylt á grundvelli rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar að koma málinu í þann farveg að upplýst sé um þessi atriði. Við munnlegan málflutning skýrðist málið ekki frekar að þessu leyti. Við svo búið telur áfrýjunarnefndin sér ekki unnt að taka efnislega afstöðu til málsins. Verður því ekki komist hjá því að ógilda hinn kærða úrskurð Samkeppniseftirlitsins og leggja fyrir eftirlitið að taka á ný afstöðu til málsins að undangenginni frekari rannsókn og að fengnum sjónarmiðum er varða þýðingu samningsins á milli áfrýjanda og KS frá 15. júlí 2008, uppgjöri á milli aðila hans og efndum á því tímabili sem meint brotastarfsemi stóð yfir.“
Samkeppniseftirlitið mun í samræmi við úrskurð áfrýjunarnefndar taka málið aftur til meðferðar. Jafnframt mun Samkeppniseftirlitið taka til rannsóknar hvaða ástæður liggja fyrir því að umræddur samningur var ekki lagður fyrir eftirlitið við rannsókn málsins, en viðurlög geta legið við því að halda upplýsingum frá eftirlitinu við rannsókn máls.“
Segir Ólafur að um þetta þurfi ekki að hafa mikið fleiri orð. MS hafi verið beðið um gögn en afhenti ekki Samkeppniseftirlitinu gögn sem voru til.