„Ég var framan af mikill vinstrimaður. Ég skildi byltinguna á Kúbu þegar ég var 14 15 ára mjög vel, að það þyrfti að taka fólk að lífi. Bara mjög eðlileg. Það þurfti að hreinsa út kapítalistana og skjóta þá í hausinn.“
Þetta sagði Vignir Rafn Valþórsson, leikari og leikstjóri í Mannlega þættinum á RÁS 1. Vignir Rafn er mikill vinstrimaður og var harður sósíalisti. Hann var alinn upp á vinstrisinnuðu heimili og voru foreldrar hans Alþýðubandalagsfólk.
Þá heldur Vignir fram að Íslendingar vilji ekki jafnrétti. Þrælslundin sé of mikil. Vignir segir:
„Mér finnst það eigi að þjóðnýta landið og miðin. En við erum þrælar þannig að við getum það ekki og myndum ekki vilja það.“ Þá sagði Vignir einnig:
„Fólk í landinu vill ekki að það verði jafnrétti. Við viljum ekki borga ljósmæðrum hærri laun, þá myndum við bara gera það. Við viljum ekki skattleggja ríka fólkið meira, jafnvel þó við eigum ekki neitt, jafnvel fátæka fólkið. Við bara viljum það ekki. Okkur finnst það óréttlátt.“