Vigfús Ólafsson hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að valda eldsvoða í einbýlishúsi við Kirkjuveg á Selfossi þann 31. október síðastliðinn. Tvær manneskjur létust í brunanum. Vigfús er dæmdur fyrir stórfellda brennu og manndráp af gáleysi. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands í dag og Mbl.is greinir frá.
Ekki var fallist á aðalkröfu ákæruvaldsins, þar sem þess var krafist að Vigfús yrði dæmdur fyrir að hafa valdið brunanum og þar með andláti þeirra tveggja sem voru stödd á efri hæð hússins þegar eldurinn kom upp, af ásetningi á lægra stigi.
Vigfúsi er gert að greiða aðstandendum hinna látnu á þriðja tug milljóna í miskabætur vegna málsins. Hann ber auk þess allan sakarkostnað í málinu.
Sjá einnig: Elva hrækti á Vigfús og kallaði hann ógeðslegan morðingja
Elva Marteinsdóttir, sem var ákærð fyrir að koma fólkinu sem lést ekki til bjargar, var sýknuð af ákærunni.
18 ára fangelsi hæfileg refsing
Kolbrún Benediktsdóttir, saksóknari í málinu, sagði í málflutningi sínum í síðasta mánuði að hæfileg refsing Vigfúsar væri allt að átján ára fangelsi, en dómurinn hljóðar eins og áður segir upp á fimm ára fangelsi.
Í samtali við Mbl.is segir Kolbrún að hún geti ekki tjáð sig um hvort málinu yrði áfrýjað af hálfu ákæruvaldsins. Sú ákvörðun er í höndum ríkissaksóknara.
„Ég er morðingi“
Vigfús sagði fyrir rétti að hann hafi munað eftir því að hafa kveikt í pizzukassa í stofunni. Allt í einu hafi stofan verið alelda, en hann hefði reynt að slökkva eldinn með bjór. Sagði Vigfús einnig að hann hafi yfirgefið húsið þegar hann áttaði sig á því að hann gæti ekki slökkt eldinn.
„Ég er morðingi, Guð fyrirgefi mér“, sagði Vigfús í lögregubíl eftir að hafa verið handtekinn, grunaður um íkveikjuna.
Létust vegna reykeitrunar
Samkvæmt Sebastian Kunz réttarmeinafræðingi létust manneskjurnar tvær, karl og kona sem voru par, vegna reykeitrunar. Kunz sagði að hvorugt þeirra hafi verið með útlæg merki um höggáverka. Meinafræðileg ummerki um innri áverka á líffærum hafi heldur ekki verið greinanleg. Samkvæmt krufningu var því ekkert sem benti til þess að eitthvað annað hafi orðið þeim að bana.
Einnig tók Kunz fram að parið hafi verið undir áhrifum bæði lyfja og áfengis, sem hafi gert það að völdum að þau hafi ekki orðið vör við eldinn fyrr en það var um seinan. Parið var á lífi á meðan eldurinn geisaði, þau lágu ekki og voru á ferli í svefnherbergi á efri hæð hússins. Þannig liggur fyrir að þau hafi ekki dáið úr reykeitrun í svefni. Fannst parið látið í svefnherberginu og sagði Kunz konuna hafa látist á eftir karlinum.