Það þykir flottara hjá vinstri mönnum að djöflast út í okkar höfuðatvinnugrein, útgerðina. Þetta sagði Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar í umræðu á þingi um fjáraukalög í morgun.
Vigdís tók þennan útúrdúr í umræðu um fjáraukalögin en sagði landsmenn vita að sjávarútvegur væri undirstaða gjaldeyristekna þjóðarinnar, veiðigjöld Vinstri stjórnarinnar hefðu verið búin að pína útgerðarfélög svo að þau hefðu verið hætt að greiða skatt.
Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingu, ræddi fjáraukalögin við Vigdísi, formann fjárlaganefndar, er ummælin féllu.
Steingrímur J. Sigfússon sagði að Vigdís væri gjörsamlega ótengd við raunveruleikann eftir að hún kenndi vinstri stjórninni um ýmsan niðurskurð. Steingrímur minnti hana á afleiðingar efnahagshrunsins og sagði merkilegast að fjáraukalögin væru í höndum manneskju sem talaði með eins ævintýralegum hætti og raun bæri vitni.