Vigdís vill áfram sömu ríkisstjórn

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar og oddviti framsóknarþingmanna í Reykjavík er eindregið þeirrar skoðunar að stjórnarflokkarnir eigi að halda áfram stjórnarsamstarfi á næsta kjörtímabili fái þeir umboð til þess.

Vigdís var gestur Sigmundar Ernis í einkar persónulegu samtali í þættinum Mannamáli á Hringbraut á miðvikudagskvöld, en í þættinum, sem sjá má hér á vef stöðvarinnar, ræddi hún ítarlega og opinskátt um hvatvísi sína og ákafa í íslenskri stjórnmálaumræðu sem oftsinnis hefur fengið hárin til að rísa á andstæðingum hennar í pólitíkinni. \"Já, það er rosaleg óþolinmæði gagnvart því sem ég segi,\" kvað hún við, aðspurð um lætin í kringum hana.

Fáir ef nokkrir íslenskri stjórnmálamenn hafa verið níddir jafn rækilega á samfélagsmiðlum og Vigdís, en í þættinum sagðist hún vera komin með skráp og tæki ekki sóðaskapinn á þessum miðlum nærri sér, nær væri að virkenna þeim sem höguðu máli sínu á þennan veg. \"Það má greinilega allt segja um mig,\" sagði Vigdís. Vissulega hefði hún átt að láta margt ósagt sem hefði fallið úr hennar munni í hita leiksins, einkanlega í málþófi síðasta kjörtímabils, en hún væri einu sinni þessarar gerðar og fólk ætti einfaldlega að taka henni eins og hún væri; hvatvísri og ákafri, já og vinnusamri. \"En það er rétt, ég má varla taka til máls að það verði ekki allt vitlaust.\"

Hún lofaði stjórnarsamstarfið í þættinum, sagði það hafa gengið vel, árangurinn væri augljós, flokkarnir næðu vel saman, svo og þingmenn þeirra - og rökrétt framhald þeirrar vinnu væri að halda samstarfi áfram á næsta kjörtímabili. Stjórnarandstöðuflokkarnir væru annað tveggja í tómu basli með sjálfa sig eða rækju mjög óljósa pólitík sem erfitt væri að taka alvarlega.

Framsókn hefur verið að mælast með á milli 10 og 14% fylgi á síðustu misserum á meðan Sjálfstæðisflokkurinn hefur skorað frá 19 til 24% í skoðanakönnunum á þessu og síðasta ári. Samanlagt meðalfylgi þeirra á þessum tíma hefur vart verið meira en 35% - og því mega stjórnarflokkarnir herða róðurinn ef ósk Vigdísar um framhald samstarfs á að ná fram að ganga.

En það eru 15 mánuðir í þingkosningar - og það er drjúgur tími í pólitík.

Mannamál eru endursýnd á laugardags- og sunnudagskvöld.