Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, verður gestur í Þjóðbraut í kvöld. Skýrsla meirihluta fjárlaganefndar verður til umræðu. Af nógu verður að taka.
„Skýrslan sýnir að samningagerðin gekk alfarið út á að friðþægja kröfuhafana með því að afhenda þeim eignarhald á bönkunum, varpa allri ábyrgð á íslenska skattgreiðendur og falla frá tugmilljarða króna arðgreiðslum, endurgreiðslum og vaxtagreiðslum. Samningamenn fjármálaráðuneytisins og Seðlabankans afhentu kröfuhöfunum eignir á silfurfati og afsöluðu meira og minna öllum ávinningi ríkisins af þeirri ábyrgð sem það tók á sig frá hruni bankanna,“ segir meðal annars í skýrslunni.
Texti sem þessi er svo sterkur, segir svo margt og kallar á margar spurningar.
Þjóðbraut er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.