Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, hafnar því alfarið að myndband sem hún las inn á fyrir samtökin Björgum miðbænum hafi gert heimili Dags B. Eggertssonar borgarstjóra að skotmarki. Eftir að skotið var á bíl borgarstjóra nýverið hefur myndband samtakanna farið í umræðuna, fjallaði það um meinta framúrkeyrslu Reykjavíkurborgar á framkvæmdum á Óðinstorgi þar sem Dagur á heima. Tveir hafa réttarstöðu sakborninga vegna skota á bíl Dags og fjölskyldu hans.
Vigdís segir í færslu á Facebook að heimili hennar í Drápuhlíð hafi einnig verið opinberað:
„Þá er einnig rétt að upplýsa um að borgarstjóri gerði heimili mitt að umtalsefni í ræðu sinni á borgarstjórnarfundi á síðasta ári þegar skipulagsmál voru til umræðu
Góð þróun? Nei líklega ekki,“ segir hún. Þá hafi borgarstjóri sjálfur gefið færi á heimili sínu: „Þar að auki hefur borgarstjóri opnað heimili sitt á hverju ári fyrir gestum og gangandi - sem er frábært út af því hann kaus það sjálfur.“
Vigdís hafnar svo yfirlýsingu borgarinnar að kostnaður við Óðinstorg hafi aðeins verið um 60 milljónir, segist hún hafa það skjalfest að verkefnið hafi kostað meira en 600 milljónir.
„Á einu ári hækkaði kostnaðurinn um 327 milljónir. Þegar fundargerðir umhverfis og skipulagsráðs eru skoðaðar þá er ekki að finna leyfi eða upplýsingar um þær umfangsmiklu framkvæmdir sem búið er að framkvæma. Hver gaf leyfi fyrir þessum framkvæmdum?,“ spyr hún í grein á vef Vísis. „Hver tók ákvörðun um að víkka framkvæmdir við Óðinstorg í allar áttir með snjóbræðslukerfi svo dæmi sé tekið? Voru kjörnir fulltrúar blekktir? Þessar staðreyndir hafa valdið deilum og misskilningi og hafa kallað á gríðarlegar eftiráskýringar borgarstjóra og borgarfulltrúa í meirihlutanum.“
Hún segir borgina beita fyrir sér „ævintýralegum reiknikúnstum“: „Reikningskúnstirnar sem finna má í framhaldinu eru ævintýralegar. Heildarkostnaði var skipt niður á verkhluta. Með öðrum orðum kostnaði var skipt jafnt út. Líka hönnunarkostnaði upp á tæpar 60 milljónir. Kostnaðurinn er fenginn með að deila 474.192.039 kr. með 5.280 m2 til að fá verð pr. fermetara á framkvæmdasvæðinu. Fermeterinn leggur sig á tæpar 90.000 kr. og það er sama verð fyrir dýrt sérhannað Óðinstorg eins og gangstétt. Síðan er fermetraverðið margfaldað með stærð Óðinstorgs sem er 675 m2 og þannig kemur kostnaður Óðinstorgs út á rúmar 60 milljónir,“ segir hún.
„Allt heiðarlegt fólk hlýtur að sjá að þessar reikningskúnstir ganga ekki upp og ljóst er að fermetraverð á svona fínu torgi er margfaldur á við einfalda gangstétt. Krafan er núna sú að borgarstjóri upplýsi um raunverulegan kostnað við torgið, ellegar að innri endurskoðandi taki málið til skoðunar.“