Í gær gripu nokkrir stjórnarandstöðuþingmenn tilvitnanir úr ályktun miðstjórnar ASÍ á lofti og flögguðu í ræðustóli gagnrýni þeirri sem ASÍ sendi fjölmiðlum í gær vegna áherslna í fjárlagafrumvarpi. ASÍ sagði vel gert við hina auðugri en verr stæðir sætu á hakanum.
Kjarninn greinir frá því að Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður fjárlaganefndar, hafi ritað færslu á facebook síðdegis í gær og sagt Alþýðusamband Íslands (ASÍ) vera öflugustu stjórnarandstöðu sitjandi ríkisstjórnar. Vísar Kjarninn til þess að Vigdís hafi skrifað: „...með ólíkindum að ASÍ skuli vera notað með þessum hætti mót stjórnvöldum - hvað segja stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar sem greiða í aðildarfélög ASÍ?\"
Hvort Vigdís hefur séð eftir ummælum sínum og þá einkum þeim síðustu sem Kjarninn vitnar til liggur ekki fyrir en athygli vakti í gærkvöld að þá var færsla Vigdísar horfin úr frétt Kjarnans sem vekur upp spurningu um hvort formaður fjárlaganefndar eyddi sjálf út færslunni.
Umræðum um fjárlagafrumvarpið lauk um miðnættið.