Vigdís og oddný á hringbraut í kvöld

Formaður fjárlaganefndar, Vigdís Hauksdóttir, Framsóknarflokki, situr fyrir svörum í kvöld um stöðu ríkisstjórnarinnar eftir forsætisráðherraskipti dagsins og aðrar hrókeringar.

Vigdís og Oddný G. Harðardóttir, fyrrum fjármálaráðherra, munu takast á í þættinum en Samfylkingin mun bera upp vantrauststillögu á Alþingi a morgun ásamt öðrum stjórnarandstöðuflokkum.

Þá verður farið til Bessastaða og birt viðtal við fráfarandi forsætisráðherra og rætt við mótmælendur sem segja að kröfum almennings sé hvergi mætt, boða verði til kosninga strax en ekki í haust eins og ráðgert er.

Fordæmalaust er að íslenskur forsætisráðherra hrökklist frá völdum vegna spillingarmáls. 22.000 manns kröfðust afsagnar Sigmundar Davíðs á Austurvelli í vikunni auk þess sem 30.000 manns afhentu forseta Íslands undirskriftir í dag þar sem farið var fram á afsögn Sigmundar. Þáttur rannsóknarablaðamanna réði úrslitum um afdrif ráðherra og þá ekki síst viðtal sem sýnt var í Kastljósþætti sl. sunnudag þar sem Sigmundur Davíð sagði ósatt um Wintris-félag sitt á Tortóla og gekk út úr viðtali. Sigurjón M. Egilsson, fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins og þrautreyndur blaðamaður um áratuga skeið, mun ræða í þætti Hringbrautar í kvöld mátt Fjórða valdsins í atburðarásinni og leggja mat á hvernig íslenskir fjölmiðlar hafa staðið sig eftir að málið kom upp.

Lokaþáttur sjónvarpsþáttasyrpunnar Guð blessi Ísland... aftur,  sem Hringbraut hefur staðið fyrir alla vikuna með beinum útsendingum vegna stórtíðandanna í kjölfar afhjúpunar Panamaskjalanna fer í loftið klukkan 21 í kvöld og stendur til klukkan 22. Þátturinn verður endursýndur klukkan 23. Umsjónarmenn eru Björn Þorláksson, Ólafur Arnarson og Ólafur Ísleifsson.