Vigdís og Dóra rífast áfram: „Vigdís er orðin einn allsherjar skrípaleikur“

Vigdís Hauksdóttir lagði fram fimm samhljóða bókanir á fundi borgarráðs í gær þar sem hún mótmælti nærveru starfsmanns borgarinnar. Sá er skrifstofustjóri á skrifstofu borgarstjóra sem hefur sakað Vigdísi um að leggja sig í einelti og sakaði Vigdís stkrifstofustjórann þá á móti um einelti.

Dóra Björt, borgarfulltrúi Pírata, tjáði sig um bókanir Vigdísar á Facebook í dag þar sem hún fer heldur ófögrum orðum um hana:

„Vigdís Hauksdóttir er orðinn einn allsherjar skrípaleikur og borgarbúar eru löngu búnir að fá sig fullsadda af þessu rugli. Núna hefur hún tekið upp á því að snúa sér við í sæti sínu á fundum þegar viðstatt er fólk sem henni líkar ekki. Hún myndi líklega hagnast á þeirri góðu menntun sem fer fram í leikskólum Reykjavíkur,“ segir Dóra.

„Kjörnir fulltrúar eiga að standa vörð um hagsmuni Reykvíkinga frekar en að reyna að hola stjórnkerfið að innan. Hvernig þjónar það Reykjavík að níðast á starfsfólki við störf sín og opinberlega, á starfsfólki sem getur ekki borið hönd fyrir höfuð sér?“ heldur hún áfram.

Hún birtir svo hluta af bókun meirihlutans í gær sem var svar við bókunum Vigdísar: ,,Áfram heldur borgarfulltrúinn árásum sínum á starfsfólk sem hann er orðinn þekktur fyrir bæði hjá ríki og borg. Hefði verið betra að borgarfulltrúinn sinnti skyldu sinni og stæði vörð um hag Reykjavíkurborgar frekar en að vinna að því að grafa undan innviðum borgarinnar.”

Vigdís svarar

Vigdís tjáði sig loks um málið á Facebook í dag þar sem hún segir:

„Borgarstjóri, skrifstofustjóri hans, meirihlutinn og mannauðs- og starfsumhverfissvið Reykjavíkur hótuðu mér með siðanefnd íslenskra sveitafélaga - og ég hélt að málið væri þar í fjóra mánuði - eða allt þar til ég hafði samband sjálf við ritara siðanefndarinnar sem sagði mér að ekkert mál væri opið á hendur mér hjá nefndinni.

Þann 2. desember 2019 var ég ónáðuð í þriðja sinn á heimili mínu að kvöldi til þar sem ég skrifaði undir móttöku á bréfi frá mannauðs- og starfsumhverfissviði Reykjavíkurborgar. Í bréfinu er viðurkennt að "rannsóknarréttur ráðhússins" virkaði ekki því ég lét ekki þvæla mér inn í hann - enda ekki byggður á neinum lögum.“

Hún segir þá að í bréfinu hafi staðið: „Teymið hyggst senda siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga til meðferðar erindi lögmanna um brot á siðareglum. Er þér hér með gefið tækifæri til þess að koma á framfæri skriflegum athugasemdum við þá fyririráætlun fram til 18. desember 2019.“

„Ég brást ekki við þessu bréfi frekar en hinum tveimur sem mér höfðu borist og ályktaði að stjórnvaldið Reykjavíkurborg myndi standa við hótaninar í bréfinu - má auðveldlega álykta að verið sé að misnota siðanefnd íslenskra sveitarfélaga og nota sem barefli á mig í þeirri von að ég myndi lippast niður,“ segir Vigdís.

„Eftir þrotlausar og árangurslausar tilraunir að þvæla mér inn í heimatilbúið ferli borgarstjóra og formanns borgarráðs - hafa þau viðurkennt ósigur sinn gagnvart mér í þessu máli.
En það sem gerðist næst er vægast sagt ævintýralegt - skrifstofustjóri Dags B. Eggertssonar fór að mæta á fundi eins og ekkert hefði í skorist og ætlar að taka stöðu sína á ný í borgarráði.

Því mótmæli ég.
Enda segir í gagnbókun minni í málinu: "Sveitastjórnarlög ganga lengra en samþykktir Reykjavíkurborgar í lagatúlkun. Í 22. gr. laganna er kveðið á um að sveitarstjórnarmanni ber skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli."

Það er ljóst hver hefur lögbundinn forgang á fundi - ég eða skrifstofustjóri borgarstjóra,“ segir hún loks.