Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands ákvað að beita ekki málskotsréttinum í EES-málinu á sínum tíma þrátt fyrir fjölda áskorana. Hún kaus að gera það ekki.
Með ákvörðun sinni undirstrikaði hún að forseti hefði þennan rétt. Og hefði samkvæmt því allt eins getað notað hann á sínum tíma.
Þetta kom fram í máli stjórnmálafræðinganna Stefaníu Óskarsdóttur og Ólafs Þ. Harðarsonar í þætti Ólafanna á Hringbraut í gærkvöld, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar.
EES-samningurinn hafði stuðning meðal þjóðarinnar á þessum tíma og má telja Vigdísi hafa farið að þjóðarvilja með ákvörðun sinni. Málin sem Ólafur Ragnar Grímsson vísaði til þjóðarinnar höfðu ekki stuðning hennar. Í ákvörðunum sínum í þessu efni má í þessu ljósi telja Vigdísi og Ólaf Ragnar hafa farið að vilja þóðarinnar.