Vigdís næði inn í borgarstjórn

Vigdís Hauksdóttir, nýr leiðtogi Miðflokksins í Reykjavík næði sæti í borgarstjórn Reykjavík, gengi ný skoðanakönnun Fréttablaðsins eftir, en hún var gerð í gær og fyrradag og sýnir öðru fremur þær fréttir að meirihlutinn heldur enn með 12 kjörna fulltrúa.

Vigdís má þó ágætlega við una, flokkur hennar hreppti slétt 6 prósent og skýtur Framsókn aftur fyrir sig með aðeins 3,4 prósenta fylgi. Vigdís þarf aftur á móti að bíta í skjaldarrendur ef vilji hennar sjálfrar um að ná minnst fimm borgarfulltrúum á að ganga fram.

Vigdís hefur ekki áður boðið sig fram í borginni en hefur reynslu af þingstörfum, meðal annars sem formaður fjárlaganefndar.