Vigdís, mundu: vaxtaokrið skiptir mestu

Athafnakonan Margrét Kristmannsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka verslunar og þjónustu skrifar opið bréf til Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar í nýjasta pistli sínum á Hringbraut og biður hana að skoða hagræðingarleiðina fyrir íslenska þjóð, jafnt heimili, fyrirtæki og stofnanir.

Margrét bendir Vigdísi á að kostnaður við tillögur stjórnarandstöðunnar um aukin fjárútlát séu fimmaurar á við það augljósa: \"Fjármálaráðherra er nefnilega nýbúinn að svara fyrirspurn á Alþingi um að áætlaður beinn árlegur vaxtakostnaður íslenskra heimila sé á bilinu 11 til 29 milljörðum hærri samanborið við vaxtastig alþjóðlegra mynta á borð við evru,\" skrifar Margrét og heldur áfram: \"Ef íslensk heimili væru ekki svona vaxtapínd gætu þau sem sagt uppfyllt allan óskalista stjórnarandstöðunnar og vel það - og átt afgang! Þetta gætir þú bent á nú þegar allir horfa til þín um aukið fjármagn,\" skrifar Margrét til Vigdísar.

\"En þessir milljarðar eru svo sem smáaurar því auðvelt er að bæta 100 milljörðum í púkkið,\" bætir Margrét við, vön sínum atvinnurekstri: \"Því 100 milljarðar er einmitt sú fjárhæð sem áætlað er að íslensk fyrirtæki borgi í umfram vaxtakostnað á ári vegna íslensku krónunnar.\"

Hún beinir orðum sínum til Vigdísar: \"Þú getur bent á að þjóð sem hefur efni á því að greiða 120 milljarða árlega í óþarfa vaxtakostnað hafi ekki efni á því að kvarta og kveina.   Nær væri að losa um þessa 120 milljarða með því að skoða upptöku alþjóðlegrar myntar enda yrði starf þitt sem formaður fjárlaganefndar miklu auðveldara fyrir vikið.\" 

Heilræði Margrétar er þetta: \"Bentu stjórnarandstöðunni á að berjast frekar fyrir þessari lausn Vigdís enda mun væntanlega ekki standa á þínum stuðningi í því máli - eða hvað,\" spyr ein kunnasta athafnakona landsmanna.