Vigdís mætir sigríði ingibjörgu

Þingkonurnar Sigríður Ingibjörg Ingadóttir frá Samfylkingunni og Vigdís Hauksdóttir úr Framsóknarflokknum mætast á Þjóðbraut í kvöld og má búast við að þar verði töluð íslenska með andköfum. Í þessum vikulega þætti sem einn allra reynasti fjölmiðlamaður landsins, Páll Magnússon stjórnar er komið víða við sögu að þessu sinni; Þórunn Lárusdóttir frá Rauða krossi Íslands ræðir um átak gegn fordómum gagnvart útlendingum og Eyjamaðurinn og tannlæknirinn Heimir Hallgrímsson fjallar um landsliðsfótbolta "sem er þjóðmál eins og hvað annað," eins og umsjármaður þáttarins hafði á orði í sminkherberginu á Hringbraut í dag þegar verið var að undirbúa þáttinn.


Þjóðbraut eins og aðra þætti á sjónvarpsstöðinni Hringbraut er hægt að nálgast undir sjónvarpsflipanum daginn eftir frumsýningu, en einnig stöku klippur úr þeim sem geyma ýmis fréttnæm ummæli. Þjóðbraut fer í loftið klukkan 21.00 í kvöld og varir í klukkustund.