Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins leiðir lista Miðflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar í vor, en þetta var tilkynnt á fundi flokksins í kvöld.
\"Ég geri þetta fyrst og fremst því það er verk að vinna í borginni og ég var ekki lengi að ákveða mig þegar þetta kom til að ég yrði borgastjóraefni Miðflokksins,“ segir Vigdís í samtali við mbl.is.
\"Það er mikill meðbyr með flokknum á höfuðborgarsvæðinu, ég hef fundið það síðastliðna mánuði. Við unnum auðvitað mikinn kosningasigur í Alþingiskosningunum og sá meðbyr hefur haldið. Ég var raunverulega bara að sinna því kalli að halda þessari sigurgöngu flokksins áfram.“
Ákveðið var að kynna oddvita flokksins í kvöld en lokafrestur til að skila inn öðrum framboðum er samt sem áður klukkan 12, laugardaginn 17. febrúar næstkomandi. Þann 24. febrúar mun svo stjórn Miðflokksins í Reykjavík svo kynna 6 efstu frambjóðendur á framboðslistanum, að því er fram kemur á vefnum í kvöld.