Vigdís kærir úrskurð sýslumanns

„Fallni meirihlutinn á ekki að komast upp með kosningasvindl í afliðnum borgarstjórnarkosningum. Ég hef nú kært úrskurð sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og tæmi þar með kæruleiðir innanlands. Nú fer kosningakæran í nýtt ferli.

Þetta ritar Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, á Facebook-síðu sína í dag.

Hún birtir sömuleiðis kæruna sem hún hefur lagt fram til dómsmálaráðuneytisins. Þar segir meðal annars: „Hinn 14. febrúar lagði undirrituð fram kæru hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu vegna borgarstjórnarkosninganna sem fram fóru hinn 26. maí 2018.“

„Var kæran lögð fram í kjölfar þess að Persónuvernd gerði alvarlegar athugasemdir við framkvæmda og aðdraganda kosninganna í Reykjavík, sbr. Úrskurð stofnunarinnar í máli nr. 2018/831 sem finna má á þessari slóð: https://www.personuvernd.is/urlausnir/akvordun-personuverndar-um-notkun-reykjavikuborgar-og-rannsakenda-vid-haskola-islands-a-personuupplysingum-fra-thjodskra

Í kærunni bendir Vigdís á að sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafi þann 21. febrúar síðastliðinn kveðið upp ákvörðun um að kæran yrði hvorki tekin til efnismeðferðar né úrskurðar. Samkvæmt 27. grein stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um þriggja mánaða kærufrest frá því aðila máls er tilkynnt um stjórnvaldsákvörðun og á þeim grunni hefur Vigdís ákveðið að leggja kæru sína fram til efnismeðferðar í dómsmálaráðuneytinu.

Við minnum á Facebook-síðu Hringbrautar. Þar er að finna áhugaverðar fréttir og þá er ýmislegt spennandi framundan fyrir vini Hringbrautar. SMELLTU HÉR og vertu vinur okkar á Facebook.

Skjáskot af kærunni í heild sinni:

\"\"