Vigdís kærir skrif og ummæli

„Teningunum er kastað - eftir rúmlega sjö ára níðskif um mig á netinu - gekk ég á fund lögreglunnar og lagði fram kæru vegna ærumeiðandi ummæla og skrifa. Nú fer málið í ferli,“ skrifar Vigdís Hauksdóttir á Facebook.

Um fáa Íslendinga hefur verið skrifað jafn mikið, og jafnvel eins illa og Vigdísi, sem hefur samkvæmt þessu fengið meira en nóg, og ákveðið að kæra skrif og ummæli um sig.

Eflaust eru einhverjir órólegir þess vegna. Verði mál Vigdísar rannsakað er víst að einhverjir þurfa að mæta til lögreglu vegna skrifa sinna og ummæla.