Vigdís hjá flokki fólksins

Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, verður fyrirlesari á opnum fundi hjá Flokki fólksins. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir frá þessu á Facebook.

Fundurinn verður á sunnudaginn kemur og er opinn.

Vigdís Hauksdóttir verður gestur fundarins og mun hún fjalla um skýrslu sína varðandi einkavæðingu bankanna hina síðari.
„Mikið gustaði í kringum skýrsluna fyrst eftir að hún var birt og sitt sýnist hverjum,“ segir formaðurinn.