Vigdís: „hér er verið að nota nafnið mitt og í raun mig sjálfa í að ljúga að fólki“

Undanfarin ár hefur það færst í aukana að falsfréttir séu birtar á Facebook. Þá hafa óprúttnir aðilar sig í frammi við að gabba fólk og fá það til að smella á „fréttir“ sem innihalda oftast illa þýddan íslenskan texta. Gjarna er þar sagt frá ýmsum töfralausnum til þess að græða peninga.

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, er ein þeirra sem hefur orðið fyrir barðinu á óprúttnum aðilum og lætur vita af því á Facebook-síðu sinni í dag. Hún deilir skjáskoti af „frétt“ með ljósmynd af henni, og má sjá skjáskotið hér að ofan.

„Bara láta ykkur vita að þetta er „falsfrétt“ - fékk ábendingu um þetta frá Facebook vini. Hér er verið að nota nafnið mitt og í raun mig sjálfa í að ljúga að fólki. Passið ykkur á þessum delum sem að þessu standa!!!“ segir Vigdís, þó reyndar sé hvergi minnst á nafn hennar.

Hringbraut hefur áður greint frá því hvernig nafn og staða Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra hefur verið notað í í svipaðri falsfrétt.