Vigdís hefur farið yfir strikið

Björn Karlsson, formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana, mætir á Hringbraut í kvöld, þar sem hann finnur að orðum Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar Alþingis.

Vigdís hefur sagt og látið að liggja að embættismenn maki krókinn þegar þeir stunda innkaup í nafni þeirra stofnanna sem þeir starfa fyrir. Björn segir að Vigdís hafi farið yfir strikið.

Í viðtali hér á Hringbraut, fyrir skömmu, sagði Vigdís hættu vera á spillingu og mikils eftirlits væri þörf.

Undir það tekur Björn Karlsson.

Viðtalið við hann er á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:15 í kvöld.