Ný skýring er komin fram á hugtakinu lýðræði. Skýringin er samkvæmt stjórnarandstöðunni sú að minnihlutinn ræður.
Þessi orð lét Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokks falla í umræðu um fundarstjórn forseta á Alþingi í morgun.
Þar kvað fjöldi þingmanna í stjórnarandstöðunni sér hljóðs vegna kröfu um að mál um að leggja Þróunarsamvinnustofnun niður og færa málaflokkinn inn til utanríkisráðherra ætti að taka út ad dagskrá þingsins. Skýringar á kröfunni voru nefndar fjarvera ráðherra Gunnars Braga Sveinssonar í umræðum og ýmsa ágalla á frumvarpinu og framkvæmdinni.
Ummæli Vigdísar hleyptu illu blóði í minnihlutann. Auk þess að skilgreina lýðræði minnihlutans með því að lýðræði væri að minnihlutinn réði sagðist Vigdís á móti málæði en þá höfðu stjórnarandstæðingar þæft ullina um skeið undir liðnum fundarstjórn forseta.
Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingu, spurði eftir ræðu Vigdísar hvort vera kynni að ummæli hennar myndu ekki hjálpa þingstörfum í framtíðinni.