Um helgina samþykkti Alþingi fjárveitingu til Aflsins upp á 10 milljónir fyrir árið 2016.
„Þetta er algjör vendipunktur fyrir samtökin og nú getum við virkilega farið að byggja upp þjónustuna við þolendur ofbeldis í samræmi við eftirspurnina sem hefur vaxið gríðarlega síðustu ár,“ segir í yfirlýsingu frá Aflinu.
Lengi hefur verið gagnrýnt að Aflið á Norðurlandi sem veitir þolendum ofbeldis aðstoð eitt félaga utan höfuðborgarsvæðisins með markvissum hætti fái naumar fjárveitingar og í engu samræmi við framlög til Stígamóta. En loks hyllir undir betra tíma.
Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins hefur verið mjög milli tanna fólks eftir umdeild ummæli hennar síðustu daga. Í þessu máli fær hún þó hrós, eftir því sem fram kemur í yfirlýsingu frá Aflinu.
„Við þökkum öllum þeim góðu þingmönnum sem hafa stutt málið en að öðrum ólöstuðum eiga þar Brynhildur Pétursdóttir og Vigdís Hauksdóttir stóran hlut að máli. Einnig viljum við þakka öllum þeim sem sent hafa þingmönnum og ráðherrum bréf vegna málsins eða átt við þau símtöl eða bein samtöl.“
Talskona Aflsins segir: „Það er hinn breiði stuðningur sem Aflið nýtur í nærsamfélagi sínu sem hefur haft hvað mest að segja í baráttunni fyrir auknum framlögum.“