Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins boðaði komu vorsins í morgun en Túlípanalaukarnir sem hún setti niður síðasta haust eru farnir að gægjast upp úr moldinni.
Vigdís hefur þegar tilkynnt að hún muni ekki leiða lista flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor en það er alls óvíst hvort hún snúi sér aftur í blómin, en hún er sérmenntuð á því sviði. Aðspurð segir hún allt óákveðið í sínu lífi þegar kjörtímabilinu líkur.
„Ekkert ákveðið - alveg satt,“ segir Vigdísí samtali við Fréttablaðið í dag.
Hún þó hvergi nærri hætt með Miðflokknum:
„Við erum komin með frábært framboð í 1. sætið, Ómar Örn Jónsson og ég verð á fullu í kosningabaráttunni enda endar kjörtíbabilið ekki fyrr en í lok maí,“ segir borgarfulltrúinn.