Þátturinn Blik úr bernsku er á dagskrá kl.21.00 miðvikudagskvöld. Í þetta sinn eru æskuslóðir Vigdísar Grímsdóttur rithöfundar heimsóttar. Hún ólst upp í Kleppsholtinu í Reykjavík. Vigdís segir frá foreldrum, systkinum, og líka systkininu sem ekki kom heim með mömmu af fæðingardeildinni. Hún segir frá fyrstu ástinni, sem var of fjarlæg til að geta orðið að veruleika. Hún segir frá ógleymanlegum bíóferðum og draumaleikaranum sínum, einnig pabbanum sem hún missti alltof snemma og mömmunni sem hún á enn í dag. Og hún segir frá því þegar hún fór tíu ára „í skúr með vondum mönnum“ og heimurinn hrundi en þagði yfir því í fimmtíu ár.
Þetta er annar þátturinn úr þáttaseríu Helga Jónssonar, Blik úr bernsku. Í síðustu viku var gestur þáttarins Árni Tryggvason en í næstu viku verður sýndur þáttur með Pálma Gunnarssyni. Þættirnir eru frumsýndir á miðvikudagskvöldum kl.21, endursýndir síðar það kvöld, eftir hádegi daginn eftir og um helgar.