Vigdís gæti hrist upp í þessu!

\"Vig­dís er nú lík­leg til þess að hrista eitt­hvað upp í þessu,“ seg­ir Grét­ar Þór Eyþórs­son, pró­fess­or í stjórn­mála­fræði við Há­skól­ann á Ak­ur­eyri, innt­ur álits á nýj­ustu vend­ing­um í aðdrag­anda borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna í Reykja­vík, en það er mbl.is sem ræðir við hann í dag.

Grét­ar seg­ir að fyr­ir­fram megi ætla að Miðflokk­ur­inn gæti tekið fylgi frá bæði Fram­sókn­ar­flokkn­um og Sjálf­stæðis­flokkn­um í Reykja­vík. Það verði alla­vega að telj­ast lík­legra en að ein­hverj­ar opn­ar píp­ur liggi á milli Miðflokks­ins og til dæm­is Sam­fylk­ing­ar­inn­arm, Vinstri-grænna eða Viðreisn­ar. Hins veg­ar eigi enn eft­ir að koma betri mynd á fylg­is­mál­in. Fleiri skoðanakann­an­ir þurfi til að mynda til þess.

Stór­ar svipt­ing­ar hafi al­mennt séð ekki verið í ný­legri skoðana­könn­un fyr­ir Viðskipta­blaðið. Það hafi ekki endi­lega komið mjög á óvart að Sam­fylk­ing­in hafi lækkað aðeins og Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn farið aðeins upp. Hins veg­ar hafi könn­un­in að mestu verið gerð áður en niðurstaða leiðtoga­vals sjálf­stæðismanna hafi legið fyr­ir. Það yrði því fróðlegt að sjá hvað fleiri kann­an­ir segðu. Hins veg­ar færi fylgi Bjartr­ar framtíðar vel niður.

\"Mestu tíðind­in eru kannski að Pírat­ar séu að hress­ast tals­vert og síðan mæl­ist Viðreisn með tals­vert fylgi sem myndi miðað við könn­un­ina skila þeim ein­hverj­um borg­ar­full­trú­um þar sem þeim verður fjölgað í vor. Hugs­an­legt er að um sam­starf verði að ræða á milli Viðreisn­ar og Bjartr­ar framtíðar. Fram­sókn mæl­ist ekki há núna en gætu vel tryggt sér ein­hverja full­trúa. Fjölg­un borg­ar­full­trúa er ann­ars lík­leg til þess að auka áhuga fólks á að fara í fram­boð enda þýðir fjölg­un­in meiri mögu­leika á að kom­ast inn,“ segir Grétar í frétt mbl.is í dag