Vigdís fær risaskjá, öryrkjar kartöflu

Sterk pólitísk skilaboð eru send í myndbandi sem ÖBÍ setti á youtube rétt fyrir jól.

Þar er með leikrænum hætti sýnt fram á hvernig jólasveininn færir öryrkjum kartöflu í skóinn en Vigdís Haulsdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, fær útigrill og risastóran flatskjá.

Sem dæmi um virðingu öryrkja gagnvart forsætisráðherra þjóðarinnar, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, færir jólasveinninn í myndbandinu honum Lego-kubba.

Augljóslega eru öryrkjar að túlka þau skilaboð fyrir jól þegar stjórnin neitaði lífeyrisþegum afturvirkum kjarabótum á sama tíma og þingmenn og þá ekki síður ráðherrar fengu myndarlega kjarabót frá Kjararáði, afturvirkt.

Myndbandið má skoða hér.