Fyrrverandi fjármálaráðherra undrast þá miklu athygli sem fjölmiðlar sýni Vigdísi Hauksdóttur, formanni fjárlaganefndar. Oftast vegna órökstuddra fullyrðinga.
Þetta segir Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingar og fv. fjármálaráðherra. Hún ritar færslu á eigin fésbók þar sem segir:
“Mér finnst formaður fjárlaganefndar fá óskaplega mikið rými í fjölmiðlum. Oftast er það vegna órökstuddra fullyrðinga um annað fólk sem er í þeirri stöðu að það getur ekki borið hönd fyrir höfuð sér. En þegar að það gerir það verður það til þess að fjölmiðlar taka aðra umferð með formanni fjárlaganefndar. Og sennilega fæ ég einhverja gusu fyrir þessa færslu sem endar með eineltisásökunum frá framsóknarmönnum.”
Vigdís var nú síðast í spjalli á Bylgjunni í gæmorgun en mikil umræða hefur skapast um ásakanir Vigdísar um skjalafals í fjármálaráðneytinu. Starfsmenn hafa borið þær til baka og kennt misskilningi Vigdísar um upphlaupið.