Vigdís er valdamesti þingmaðurinn!

Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir Vigdísi Hauksdóttur vera orðna valdamesta þingmann Alþingis. Þetta skrifar Mörður í pistli á Eyjunni þar sem hann rekur samskipti Vigdísar við Ríkisútvarpið síðustu ár.

Segir Mörður að fréttastofa RÚV hafi gert þau mistök, í ágúst 2013,  að hafa það eftir Vigdísi að IPA-styrkir frá Evrópusambandinu væru „illa fengið glópagull“. Undan þessu hafi Vigdís kvartað og þá hafi fréttastofan leiðrétt frétt sína og beðist afsökunar. Vigdís hefði aðeins sagt „glópagull“.

Mörður heldur þétt á penna: \"Samdægurs sagði Vigdís í viðtali að Ríkisútvarpið fengi alltof mikla peninga og fréttastofan væri bæði vinstrisinnuð og höll undir Evrópusambandið. En „ég er náttúrlega í hagræðingarnefndinni“. Sem ekki var hægt að skilja öðruvísi en sem hótun um niðurskurð fjár til RÚV.\"

Mörður segir að það hafi varla verið svo að menn tækju mark á hótunum um að pólitikus hyggðist skrúfa fyrir fjárhagslega líflín ef eitthvað kæmi þeim illa í fréttum eða dagskrá RÚV: \"Þetta væri bara venjulegur kjaftagangur og rugl í þingmanninum.“

Mörður segir hins vegar að nú hafi Vigdís náð fram hefndum og vísar þar til þess að mennta- og menningarmálaráðherrrann, Illugi Gunnarsson, hafi verið gerður afturreka með frumvrp sitt um RÚV. Vigdísi hafi tekist að leggja Illuga á þann veg að enginn geti lengur tekið mark á því sem hann segi. Þá hafi Vigdís, og hennar félagar, einnig snúið niður bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra sem hafi gefið það út fyrir átta mánuðum að Illugi nyti stuðnings þeirra í málinu: \"Vigdís Hauksdóttir er orðin valdamesti þingmaðurinn á Alþingi.\"