Vigdís endursýnd í kvöld

Forráðamenn Hringbrautar hafa ákveðið að endursýna í kvöld síðari viðtalsþáttinn við Vigdísi Finnbogadóttur frá síðustu viku​, en hann vakti mikla athygli og umtal. Í þættinum var Vigdís einkar persónuleg og ræddi meðal annars reynslu sína af bróðurmissi á afar einlægan hátt. Fjöldi fólks hefur leitað til Hringbrautar og óskað eftir því að þátturinn verði endursýndur svo fljótt sem auðið væri og var ákveðið að verða við þessum óskum í dag.


Þátturinn er á dagskrá kl. 21.00 í kvöld.