Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, segist vera andvíg því að selja meirihluta ríkisins í Landsbankanum að því er fram kom í samtali hennar og Páls Magnússonar á Þjóðbraut í gærkvöld.
Yfirlýsing Vigdísar er í andstöðu við þá skoðun sem fjármálaráðherra hefur viðrað um að ríkið ætti að halda eftir um 40 prósenta hlut í bankanum en selja meirihlutann. Vigdís segist óttast að minnihlutaeign ríkisins myndi fela í sér algjört valdaleysi í stjórn bankans, en segist þó bíða eftir að sjá öll rök fjármálaráðherra í málinu.
Vitað er að fleiri framsóknarþingmenn eru sömu skoðunar og formaður fjárlaganefndar í þessum efnum - og er því hætt við að fjármálaráðherra eigi erfitt með að hrinda þessum áfromum sínum í framkvæmd enda stjórnarandstaðan upp til hópa andvíg ráðahagnum.
Hægt er að skoða viðtalið við Vigdísi í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og klippur úr því á forsíðu vefjarins.