„Ég held að það sé full þörf á því að skoða allt skólahúsnæði Reykjavíkurborgar fyrst að ástandið er svona í Fossvogsskóla þrátt fyrir það að hafa farið í gegnum allar þessar lagfæringar og haft alla athygli borgaryfirvalda síðustu 3 ár,“ segir Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í færslu á Facebook þar sem hún ræðir nýja skýrslu Eflu um húsnæði Fossvogsskóla.
Reykjavíkurborg hefur þegar varið hálfum milljarði í viðgerðir á húsnæðinu eftir að börn fóru að veikjast, um áramótin voru nemendur fluttir upp í Korpuskóla. Foreldrar kröfðust þess að fá Eflu að verkinu þar sem börn voru enn að veikjast og við því var orðið. Er nú unnið að heildaryfirhalningu á öllu húsnæðinu. Skýrslan kom út í gær, þar var margt sláandi að finna. Í ljós kom skólpdælur höfðu farið í sundur og skólp flaut ofan á vatninu í opnum brunni nálægt þar sem matvæli eru geymd. Þá fannst mygla undir nýjum dúk í matsalnum auk rakaskemmda við loftinntak.
Valgerður, sem hefur lagt til að skólinn verði rifinn en fengið bágt fyrir hjá meirihlutanum, er harðorð. „Skýrslan er svört. Ekki hefur verið beðist afsökunar. Hér var ekki um móðursýki að ræða,“ segir hún og vísar til tölvupósta aðstoðarmanns borgarstjóra sem Fréttablaðið birti.
„Ég veit ekki með ykkur en ef þetta væri sá skóli sem ég myndi vinna í eða börnin mín myndu stunda nám í þá væri ég allt annað en sátt. Hér er t.d eitthvað sem ég hef ekki séð áður.“
Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins er æf. „Ég er orðlaus. Hvernig er hægt að standa í viðgerðum upp á 500 milljónir og taka ekki eftir neinu? Reykjavíkurborg fær falleinkunn á öllum sviðum - en þarna snýst málið um börn, starfsfólk og kennara,“ segir hún á Facebook. „Nú þegar er "ein Braggakróna" farin í skólann - og svo virðist sem þeim fjármunum hafi verið hent út um gluggann miðað við ástandið á skólanum eftir "viðgerðir"...!!!“