Seinni hluti umtalaðs viðtals við frú Vigdísi Finnbogadóttur frá því á fyrstu útsendingardögum Hringbrautar í vetur verður endursýndur á Hringbraut í kvöld í tilefni af 35 ára kosningaafmæli hennar um þessar mundir.
Óhætt er að segja að viðtal Sigmundar Ernis við Vigdísi í þætti hans Mannamáli hafi vakið þjóðarathygli á sínum tíma, en í tveimur 30 mínútna þáttum sem sýndir voru 18. og 25. febrúar ræddi Vigdís um uppeldisár sín, skólaár, leikhúsárin, skilnaðinn við eiginmanninn, kjaftasögurnar, forsetaframboðið, forsetatíðina og árin eftir veruna á Bessastöðum. Eftir því var tekið hvað Vigdís var persónuleg og opinská í viðtalinu sem er fyrsta sjónvarpsviðtalið af þessu tagi sem hún hefur veitt um langt árabil.
Fyrstu þættirnir af Mannamáli síðasta vetur verða endursýndir nú í sumar, en meðal viðmælenda í þeim, auk Vigdísar, eru Jakob Frímann Magnússon, Bryndís Schram, Guðni Bergsson, Margrét Frímannsdóttir og Hrafn Gunnlaugsson.