Viðvörun frá gjaldkera esb

Í Brussel ræða sérfræðingar afleiðingar útgöngu Breta úr Evrópusambandinu (ESB). Núna er mönnum í Brussel einkum starsýnt á fjárlagagerð ESB eftir útgönguna.

Günter Oettinger er sá í framkvæmdastjórn ESB sem fer með fjármál sambandsins og fjárlagagerð þess. Hann hefur þetta að segja. Útganga Breta skilur eftir stórt gat á ESB fjárlögunum því þá hætta Bretar að greiða sinn skerf til ESB en sá skerfur er umtalsverður.

Enda er Stóra-Bretland ekki bara eitt stærsta hagkerfi ESB heldur einnig heimsins. 

Útganga Breta merki að fjálög ESB missa hið minnsta tólf milljarða evra.

Günter Oettinger segir að þetta sé ekki einfalt mál að taka á. Einhversstaðar verður ESB að finna þessa peninga segir hann. Annað hvort eyða ESB ríkin 27 minna eða þau leggja á sig nýjar álögur til að loka 12 milljarða evra gati.   

rtá

Nánar www.europa.eu  www.ft.com