Alls bárust þrjátíu og sjö umsóknir um Eyrarrósina. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarasvæðisins. Þessi viðurkenning beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreyttni og nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.
Frú Eliza Reid forsetafrú afhendi Eyrarósina við hátíðlega athöfn á Hjalteyri við Eyjafjörð í gær. Forsetafrúin er nýr verndari Eyrarósarinnar. Viðurkenninguna hlaut Eistnaflug tónlistahátíðin sem er haldin hvert sumar á Neskaupsstað. Þungarokk og ýmiss konar jaðartónlist eru í öndvegi á þessari tónlistarhátíð.
Erlendir gestir eru ekki síst hrifnir þegar þeir heyra um þá ótrúlega mörgu viðburði á sviði lista tónlistar og bókmennta og hönnunar og annarrar skapandi iðju. Viðburðir sem skipulagðir eru hér á hverju ári sagði frú Eliza Reid í ávarpi við afhendingu Eyrarrósarinnar á Hjalteyri.
Nánar á www.forseti.is