Viðskiptin við icelandair ólögleg

Kærunefnd útboðsmála hefur í framhaldi af kæru Wow air ehf. lagt fyrir fjármálaráðuneytið að bjóða hér eftir út öll innkaup á flugfarmiðum til og frá Íslandi. Í úrskurði nefndarinnar er fallist á þau sjónarmið sem Wow og Félag atvinnurekenda hafa haldið fram, að skylda ríkisins til að bjóða út flugmiðakaupin sé fortakslaus þar sem farmiðaviðskipti ríkisins séu yfir þeim viðmiðunarfjárhæðum sem lög um opinber útboð tilgreina. Kærunefnd „þykir þó mega slá því föstu að heildarkaup íslenska ríkisins á því tímabili sem miða ber við séu langt umfram þær viðmiðunarfjárhæðir sem að framan greinir.“


Kærunefndin kemst sömuleiðis að þeirri niðurstöðu að fjármálaráðuneytið og aðrar ríkisstofnanir hafi ekki keypt flugfarmiða í samræmi við þau innkaupaferli sem eru tilgreind í lögum um opinber innkaup. Ríkið hefur reynt að halda því fram að innkaup einstakra stofnana séu undir viðmiðunarfjárhæðum. Kærunefndin telur hins vegar að líta verði á farmiðakaup ríkisins sem eina heild og að þau séu á ábyrgð fjármálaráðuneytisins. „Samkvæmt þessu er það niðurstaða nefndarinnar að varnaraðili málsins, fjármálaráðuneytið hafi gerst brotlegur við áðurnefndar reglur um opinber innkaup með því að koma á fót og viðhalda ástandi þar sem umrædd þjónusta var ekki keypt inn í samræmi við lögákveðna innkaupaferla,“ segir kærunefnd. Er þar átt við viðskipti ríkisins við Icelandair samkvæmt samningi við fyrirtækið.


Nefndin taldi sig ekki hafa heimildir til að banna að veita vildarpunkta eða aðra fjárhagslega umbun til ríkisstarfsmanna í skiptum fyrir kaup hins opinbera á þjónustu. „Nefndin minnir þó á að við opinber innkaup ber að gæta jafnræðis og gagnsæis, bæði við framsetningu útboðsskilmála og mat á tilboðum,“ segir í úrskurðinum.


Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir að félagið fagni úrskurðinum, enda sé niðurstaðan mjög í samræmi við málflutning FA. „Fjármálaráðuneytið hefur lýst því yfir að farmiðakaupin verði boðin út. Við fögnum því engu að síður að kærunefndin staðfesti fortakslausa skyldu ríkisins til að bjóða út þessi viðskipti og fallist jafnframt á það sjónarmið að fjármálaráðuneytið hafi brotið lögin um opinber innkaup. Ef einhver ætti að ganga á undan með góðu fordæmi í umgengni við þá löggjöf er það fjármálaráðuneytið,“ segir Ólafur.


Skúli Mogensen, forstjóri Wow air, segist fagna úrskurðinum. „Félagið mun nú vonandi fá tækifæri til að bjóða í innkaup ríkisins."